|
Á Hálsnesi í Kjós er Maríuhöfn sem var mesti kaupstaður landsins á miðöldum, fram á 15. öld. Rústir staðarins eru ofan við Búðasand og er Maríuhöfn við suðausturenda sandsins. Skip sem þangað komu voru dregin inn á poll inn af sandinum. 1402 kom skip Einars Herjólfssonar í Maríuhöfn og flutti með sér svartadauða. Akvegur liggur niður á sandinn og hægt er að komast alveg að Maríuhöfn. Þarna er mjög fallegt og vel þess virði að skoða sig um.
|