www.iww.is
Reykjanesviti
Á Valahnúki á Reykjanesi var 1. desember 1878 tekinn í notkun fyrsti viti landsins. Hann var byggður á bjargbrúninni 43 m. y.s.m. og var úr höggnu grjóti. Hann sekmmdist nokkrum árum síðar í jarðskjálfta og var endurnýjaður árið 1897. Núverandi viti var svo byggður á Bæjarfelli 1907-1908 í 73 m. y.s.m. Umhverfi vitans er sérkennilegt og þar er margt að sjá. Fyrir innan sjávarkambinn sunnan við vitann er Reykjanestjörn en í henni gætir sjávarfalla. Hvorki er aðrennsli né frárennsli á yfirborði en sjá má hvar vatn streymir upp úr botni hennar í nokkurs konar uppsprettum. Við tjörnina er einnig Valbjargargjá, sem er volg, en þar var sundkennsla Grindvíkinga um nokkurra ára skeið fyrr á öldinni. ndan ströndinni er móbergsdrangurinn Karl, 52 m. hár.
CLOSE WINDOW
© IWW ehf. Kópavogi, 2000, 2001. Web design: Jóhann Ísberg
All unautorized duplication or use of photos and written material prohibited.