|
Látravík er syðst af þremur víkum sem kallaðar eru Útvíkur. Hinar eru Breiðavík og Kollsvík. Í Látravík er vestasta byggð Íslands, Hvallárar, en flest húsin eru nú notuð sem sumarhús. Verstöðin Brunnar var í sunnanverðri víkinni rétt norðan Brunnanúps. Þar var aðallega gert út á steinbít og má sjá marga hlaðna steingarða sem notaðir voru til að herða steinbít. Útræði þaðan lagðist endanlega af um 1880. Í rústum verstöðvarinnar má finna Brynjólfstak, sem er 350 kg. þungur aflraunasteinn. Hann er skírður eftir Brynjólfi þeim sem ku hafa borið hann upp úr fjörunni. Einnig er þar að finna annan stein, öllu minni, sem nefndur er Júdas vena þess að hann tolldi aldrei í vegg og sveik því í hleðslunni. Hjá verstöðinni eru sagðar vera dysjar spænskra ræningja, Kúlureitur, sem vegnir voru þar 1615. Allgóður akvegur er úr Örlygshöfn í Patreksfirði að Bjargtöngum og liggur hann um Látravík.
|