www.iww.is
Látrabjarg
Látrabjarg er um 14 km langt og nærri 450 m. þar sem það er hæst. Vestasti tangi bjargsins og jafnframt vestasti tangi Íslands heitir Bjargtangar. Þar er viti og allgóður akvegur liggur þangað úr Patreksfirði. Bjargið er í raun fjögur björg þó að nafnið sé nú notað um allt bjargið. Látrabjarg er vestast, þá Bæjarbjarg, Breiðavíkurbjarg og loks Keflavíkurbjarg. Undir bjarginu eru miklar urðir sem orðið hafa til við hrun úr bjarginu. Stórurð er mest þeirra en hún nær 130 m. upp eftir bjarginu og er í henni stærsta álkubyggð heims. Látrabjarg er stærsta fuglabjarg Íslands og eitt það stórkostlegasta í veröldinni. Þar er hægt að komast í návígi við lunda og aðrr tegundir sjófugla. Nytjar af bjarginu hafa og verið miklar gegnum aldirnar en sókn í það lagðist af á fyrri hluta þessarar aldar enda höfðu margir menn farist við þessa iðju. Sjórinn hefur líka tekið sinn toll og mörg skip hafa farist undir Látrabjargi. Sjaldnast hefur neinn verið til frásagnar. Frægt er þó þegar breski togarinn Dhoon strandaði undir Geldingsskradal í desember 1947. Útvíknamenn unnu þar mikið björgunarafrek þegar þeir björguðu öllum skipsverjum sem voru á lífi er þeir komu að, 12 að tölu. Þrír skipsverja höfðu áður farið í sjóinn og drukknað.
CLOSE WINDOW
© IWW ehf. Kópavogi, 2000, 2001. Web design: Jóhann Ísberg
All unautorized duplication or use of photos and written material prohibited.