www.iww.is
Reiðskörð
Í fjörunni undir Grafarhlíð á Barðaströnd eru Reiðskörð. Þau eru þunnur berggangur sem nær frá landi og út í sjó. Bergangurinn er með djúpum skörðum ganga alveg niður í fjöruna. Eftir standa allmargir klettadrangar með nokkuð jöfnu millibili. Skörðin hafa einnig verið nefnd Rauðsdalsskörð. Stutt ganga er af veginum niður í fjöruna þar sem berggangurinn byrjar. Neðan við bakkann eru einnig skemmtilegar klettamyndanir og fjaran er mjög falleg. Vel þess virði að staldra við stundarkorn.
CLOSE WINDOW
© IWW ehf. Kópavogi, 2000, 2001. Web design: Jóhann Ísberg
All unautorized duplication or use of photos and written material prohibited.