|
Selárdalur er yst við Arnarfjörð sunnanverðan og ysti dalur sem akfært er í. Þar bjó Gísli á Uppsölum, einsetumaður sem lifði við þröngan kost. Hann varð landsfrægur þegar Ómar Ragnarsson kynnti hann fyrir alþjóð. Uppsalir eru nú í eyði en margir leggja leið sína þangað. Annar merkur maður bjó í Selárdal, Samúel Jónsson (1884-1969) gjarnan nefndur alþýðulistamaður. Hann bjó að Brautarholti og byggði þar kirkju og hús auk ýmissa listaverka sem standa í hlaðinu. Kirkjuna réðst hann í að byggja þegar altaristafla sem hann gerði fyrir kirkjuna í Selárdal var afþökkuð. Samúel bar allt efni í byggingarnar úr fjörunni og steypti þær upp í mouml;rgum áföngum þar sem hann átti ekki mikið af uppaláttartimbri. Þrátt fyrir frumstæðar aðferðir og verkfæri lét hann það ekki halda aftur af sé og eru byggingarnar með kvistum, svölum og súlum. Framkvæmdir Samúels eru enn merkari í ljósi þess að allt var þetta gert eftir að hann náði eftirlaunaaldri. Á síðustu árum hefur verið reynt að forða byggingunum frá eyðileggingu og þar er opið safn í kirkjunni með munum Samúels.
|