www.iww.is
Hólar
Hólar í Hjaltadal eru einn sögufrægasti staður landsins. Á Hólum var stofnað biskupssetur upp úr 1100 og urðu Hólar raunverulegur höfuðstaður Norðurlands um sjö alda skeið. Þegar mest var tilheyrðu Hólum 352 jarðir eða meira en 1/4 hluti allra jarða í Norðlendingafjórðungi. Um 1800 lagðist bískupsstóllinn af og 1861 fluttist prestsetrið ti Viðvíkur. 1952 urðu Hólar aftur prestssetur og frá 1986 hefur vígslubiskup setið að Hólum. Að Hólum er Hólaskóli, en staðurinn á sér langa sögu sem skólasetur. Þar er ferðaþjónusta á sumrin og margt að sjá. Kirkjan sjálf er stórmerkileg og geymir margt merkra muna. Kirkjuturninn geymir jarðneskar leyfar Jóns Arasonar biskups og var reistur til nningar um hann. Sjá einnig syrpu um sögu Hóla
CLOSE WINDOW
© IWW ehf. Kópavogi, 2000, 2001. Web design: Jóhann Ísberg
All unautorized duplication or use of photos and written material prohibited.