|
Kolugljúfur er fallegt gljúfur í Víðidalsá um 1 km að lengd og 40-50 m. djúpt. Brú er efst í gljúfrinu þar sem vegurinn inn í Víðidal að vestan liggur yfir það. Gljúfrið er um 6 km frá hringveginum og vel þess vert að leggja lykkju á leið sína til að skoða það. Heitir gljúfrið eftir tröllskessunni Kolu sem á að hafa grafið það og síðan hafst þar við. Laut í gljúfrinu vestanverðu heitir Kolurúm þar sem hún svaf og í túninu á Kolugili er Koluhóll, álagablettur þar sem Kola var heigð ásamt fjársjóði sínum.
|