www.iww.is
Þingeyrar
Þingeyrar í Húnaþingi eru með stærri jörðum og ein sú þekktasta í Húnavatnssýslum og þó víðar væri leitað. Jörðin nær yfir nyrsta hluta Húnaþings, á milli Hópsins og Húnavatns, og Þingeyrarsand. Þar var stofnað fyrsta og eitt þekktasta klaustur Íslandi árið 1133 sem stóð til siðaskipta 1550. Núverandi kirkja var vígð 1877. Hana reisti Ásgeir Einarsson alþingismaður og bóndi að mestu á eigin kostnað á árunum 1864-1877 og yfirsmiður var Sverrir Runólfsson steinhöggvari. Efnið í kirkjuna var dregið á ís yfir Hópið úr Nesbjörgum vestan þess. Húnavatnsþing mun hafa verið haldið á Þingeyrum til forna en ekki finnast minjar umþað. Í forkirkjunni er legsteinn Lárusar Gottrup lögmanns (1648-1721), en hann lagði kirkjunni til marga góða gripi auk þess sem hann lét reisa veglega timburkirkju. Um 6 km eru frá hringveginum út á Þingeyrar en þaðan er víðsýnt mjög til allra átta.
CLOSE WINDOW
© IWW ehf. Kópavogi, 2000, 2001. Web design: Jóhann Ísberg
All unautorized duplication or use of photos and written material prohibited.