|
Síðasta aftaka á Íslandi fór fram árið 1830 á Þrídröngum í Húnaþingi. Hér voru tekin af lífi Friðrik Sigurðsson frá Katadal á Vatsnesi og Agnes Magnúsdóttir bústýra Natans Ketilssonar, bónda á Illugastöðum á Vatnsnesi. Voru þau dæmd fyrir morðin á Natani og Pétri Jónssyni sem var staddurá Illugastöðum til að sjá um búið meðan Natan færi til lækninga að Geitaskarði. Hafði Pétur þessi átt þátt í fjárdrápi í Svartárdal þar sem hann við annan mann darp 30 kindur og beið nú dóms. Tildrög morðmálsins voru að fjandskapur var með Natani og Friðriki, sem ekki var nema 18 ára. Höfðu þeir lent í ryskingum haustið áður auk þess sem Friðrik taldi Natan hafa prettað sig í skiptum. Að undirlagi Agnesar frömdu þau morðið og fengu til liðs við sig Sigríði Guðmundsdóttir og Daníel Guðmundsson, öll hjú á Illugastöðum. Einnig voru viðriðin morðið foreldrar Friðriks, föðurbróðir og fleiri, fólk sem vissi um ætlun hans, reyndi að hylma yfir glæpinn eða aðstoðaði hann við að fela fé sem hann tók frá Natani. Öll hlutu þau dóm en Friðrik, Agnes og Sigríður sem frömdu verknaðinn voru dæmd til að hálshöggvast. Sigríður, sem einungis var 16 ára var þó náðuð af konungi og dómnum breitt í ævilanga þrælkun. Óskað var eftir að aftakan færi fram á Íslandi til að spara ríkinu kostnað af flutningi þeirra út. Aftakan fór fram 12. janúar 1830. Guðmundur Ketilsson, bróðir Natans framkvæmdi verkið og fékk fyrir það 30 spesíur sem hann gaf fátækum. Mörgum bændum var gert skylt að vera við athöfnina og var bannað að líta undan. Höfuðin voru sett á stöng en líkin dsjuð á staðnum. Höfuðin hurfu reyndar fljótlega af stöngunum. Líkin voru síðar grafin upp og jarðsett að Tjörn á Vatnsnesi. Þrídrangar eru í útjaðri Vatnsdalshóla vestan megin. Við vegin er skilti og bílaplan en um 200 m. gangur er á aftökustaðinn frá veginum.
|