|
Víðimýrarkirkja er næst elsta kirkja landsins sem enn er sóknarkirkja. Kirkjan var byggð 1834 af Jóni Samonarsyni í Keldudal, þjóðhagasmiði og alþingismanni. Kirkjan komst í eigu Þjóðminjasafnsins 1936 og var þá öll endurbætt. Víðimýri var eitt af helstu höfuðbólum til forna en þar bjuggu Ásbirningar, ein voldugasta ætt Íslands á Sturlungaöld. Þeirra kunnastir voru Kolbeinn Tumason, sem féll í stórorrustu í Hjaltadal við Guðmundi Arason biskup 1208, og Kolbeinn Arnórsson ungi sem var andstæðingur Sturlunga og háði við þá Örlygsstaða- og Flóabardaga.
|