www.iww.is
Borgarfjörður eystri
Borgarfjörður eystri býr yfir mikilli náttúrufegurð og töfrum. Fjallasýn er þar stórkostleg enda fjölbreytni fjallanna við brugðið. Kauptúnið Bakkagerði er fyrir botni fjarðarins, fallegt lítið sjávarþorp og landbúnaður er stundaður í dalnum inn af firðinum. Í Borgarfirði eru mjög skemmtilegar fjörur, bæði sandfjörur og einnig fjörur með ávölu sjávarslípuðu grjóti. Í fjörum í Borgarfirði svo og annars staðar á svæðinu er að finna mikið úrval fágætra steina. Mikið er tínt af steinum en vert er að hafa í huga að oft eru þeir betur komnir í náttúrunni og ferðamenn mættu sýna hófsemi. Sjálfsagt er að biðja um leyfi því landið er í einkaeign.
CLOSE WINDOW
© IWW ehf. Kópavogi, 2000, 2001. Web design: Jóhann Ísberg
All unautorized duplication or use of photos and written material prohibited.